Fótbolti

Landsliðið vinnur ekki án Eiðs Smára

Óskar Ófeigur Jónsson og blaðamaður á Fréttablaðinu skrifa
Mynd/Daniel

Getum við unnið án Eiðs Smára Guðjohnsen? Tölfræðin landsliðsins undanfarin tæp sjö ár bendir ekki til þess því Eiður Smári hefur verið með í öllum þrettán sigurleikjum íslenska A-landsliðsins á þessum tíma.

Liðið hefur hinsvegar ekki náð að vinna einn einasta sigur í þeim átján leikjum sem hann hefur misst af. Íslenska liðið hefur gert 9 jafntefli í þessum 18 leikjum þar af í tveimur síðustu leikjum gegn Spáni og Kanada.

Leikurinn á móti Dönum í kvöld verður fjórði landsleikurinn á þessu ári sem Eiður Smári missir af og nú er að sjá hvort íslenska landsliðið taki sig til og breyti þessarri ótrúlegu tölfræði.

Síðustu 18 landseikir sem Eiður Smári Guðjohnsen hefur misst af:

2007

EM - 8.september- Spánn (heima) 1-1 jafntefli

Vin. - 22.ágúst - Kanada (heima) 1-1 jafntefli

EM - 6.júní - Svíþjóð (úti) 0-5 tap

2006

Vin. - 15.8.2006 - Spánn (heima) 0-0 jafntefli

2005

HM - 12. október - Svíþjóð (úti) 1-3 tap

Vin. - 7. oktbóer - Pólland (úti) 2-3 tap

Vin. - 30. mars - Ítalía (úti) 0-0 jafntefli

HM - 26.mars - Króatía (úti) 0-4 tap

2004

Vin. - 28.apríl - Lettland (úti) 0-0 jafntefli

Vin. - 31. mars - Albanía (úti) 1-2 tap

2003

Vin. - 19.nóvember - Mexíkó (Bandaríkjunum) 0-0 jafntefli

2002

Vin. - 20. nóvember - Eistland (úti) 0-2 tap

Vin. - 22. maí - Noregur (úti) 1-1 jafntefli

Vin. - 8. mars - Brasilía (úti) 1-6 tap

Vin. - 10. janúar - Sádí-Arabía (úti) 0-1 tap

Vin. - 8. janúar - Kúvæt (úti) 0-0 jafntefli

2001

Vin. - 15. ágúst - Pólland (heima) 1-1 jafntefli

Vin. - 20. janúar - Chile (Indland) 0-2 tap

Ísland vann síðast án Eiðs Smára 13. janúar 2001 þegar Ísland vann Indland 3-0 í Indlandsmótinu. Tryggvi Guðmundsson skoraði öll þrjú mörkin í leiknum.

Samantekt á árangri landsliðsins án Eiðs Smára á þessum tíma:

Leikir 18

Sigurleikir 0

Jafntefli 9

Tapleikir 9

Markatala 9-32

Nettó -23



Samantekt á árangri landsliðsins með Eiðs Smára á þessum tíma:

Leikir 42

Sigurleikir 13

Jafntefli 4

Tapleikir 25

Markatala 58-79

Nettó -21




Fleiri fréttir

Sjá meira


×