Innlent

Mældist á tvöföldum hámarkshraða

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í Vestfjarðagöngunum í síðustu viku fyrir of hraðan akstur. Mældist annar þeirra á 114 km. hraða en hámarkshraðinn í göngunum er 60 km. á klst. Þá segir á vef Bæjarins Besta að þrír aðrir hafi verið stöðvaðir á veginum um Súgandafjörð fyrir sömu sakir, einn á 118 km. hraða en hámarkshraði um veginn er 90 km. á klst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×