Forsætisráðherra segir Byrgismálið hneyksli 6. febrúar 2007 12:15
Forsætisráðherra segir að Byrgismálið sé bæði fjárhagslegt og mannlegt hneykslismál, en telur að félagsmálaráðherra þurfi ekki að segja af sér embætti vegna þess. Málið sé allt til rannsóknar hjá réttum aðilum. Valdimar Leó Friðriksson þingmaður Frjálslynda flokksins spurði forsætisráðherra út í málefni Byrgisins á Alþingi í gær og vísaði þar til laga um ráðherraábyrgð. "Hver ber að hans mati ábyrgð á mistökum í þessu máli og telur hæstvirtur forsætisráðherra að félagsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna Byrgismálsins," spurði Valdimar Leó. "Auðvitað á hæstvirtur félagsmálaráðherra ekki að segja af sér út af þessu máli. Það er hann sem í krafti síns embættis sem hefur beitt sér fyrir því að það er farið yfir þetta mál með þeim hætti sem nauðsynlegt er," svaraði forsætisráðherra. Hann vildi hins vegar að stjórnarandstaðan rifjaði upp hvernig þingmenn greiddu atkvæði um fjárveitingar til Byrgisins árið 2003 og þær heitstrengingar sem margir stjórnarandstöðuþingmenn hefðu þá haft uppi til að þrýsta á fjárveitingar til Byrgisins. Málið væri nú til rannsóknar hjá réttum aðilum og vonandi kæmi hið sanna í ljós varðandi alla þætti þess. Pottur hefði þó verið brotinn í eftirliti félagasmálaráðuneytisins. "Hvort það er einhverjum einstökum manni að kenna vil ég auðvitað ekki dæma um. En ef menn vilja beita lögum um ráðherraábyrgð hér þá er það nokkuð seint gert, því þeir tveir félagsmálaráðherrar sem komu að þessu máli eru nú báðir hættir.," sagði Geir H Haarde forsætisráðherra.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira