Földu 1,7 kg af kókaíni á aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn 28. ágúst 2007 09:31 Parið faldi kókaínið á aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn.
Íslenska kókaínparið sem nú er í haldi í Kaupmannahöfn faldi 1,7 kg af kókaíni á aðaljárnbrautarstöðinni í borginni. Parið hefur neitað að tjá sig um málið í yfirheyrslum hjá rannsóknardeild miðborgarlögreglunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Hendrik Svind, yfirmanni deildarinnar, má rekja upphaf málsins til þess að lögreglumenn höfðu tilefni til að hafa afskipti af hinum 36 ára gamla Íslendingi á kaffihúsi við Vesterbro og fundu í fyrstu rúmlega sjö grömm af kókaíni í fórum hans. Hendrik Svind segir að auk þess að finna kókaínið í fórum mannsins var hann með lykil að hótelherbergi á nærliggjandi hóteli. Lögreglumennirnir héldu því næst þangað og þar var hin tvítuga vinkona hans til staðar. Ekkert kókaín var að finna í herberginu. „Hinsvegar fundu lögreglumennirnir lykil að farangursgeymsluboxi á aðaljárnbrautarstöðinni," segir Hendrik Svind í samtali við Vísi. „Og í því boxi fannst svo 1,7 kíló af kókaíni í nokkrum pakkningum." Hendrik segir enn fremur að við athugun á öryggismyndavélum á járnbrautarstöðinni sjáist greinilega að parið setur pakkningarnar í boxið. Sem fyrr segir hefur parið neitað að tjá sig um málið við yfirheyrslur utan að bera fyrir sig sakleysi í málinu. Aðspurður segir Hendrik að parið hafi komið frá Íslandi nokkru áður en það var handtekið og því gengur lögreglan út frá því sem vísu að kókaínið hafi verið keypt í Kaupmannahöfn. Hendrik segir að parið verið áfram í gæsluvarðhaldi þar til mál þess verður tekið fyrir í héraðsdómi í Kaupmannahöfn. Aðspurður um hve langan dóm hann telji að parið fái segir Hendrik að hann geti ekki sagt til um það. „En þetta kostar," segir Hendrik. „Dómurinn verður örugglega upp á fleiri ára fangelsisvist."
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Enski boltinn Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Sjá meira