Björgum EM - Austurríki úr keppni 25. september 2007 15:57
Þúsundir stuðningsmanna austurríska knattspyrnulandsliðsins hafa nú skrifað undir beiðni til knattspyrnusambandsins þar sem þeir fara þess á leit að liðið verði dregið úr keppni á EM á næsta ári, en keppnin verður einmitt haldin í Austurríki og Sviss. Stofnuð hefur verið sérstök heimasíða þar sem yfir 4000 Austurríkismenn hafa skráð sig og skorað á knattspyrnusambandið að draga landsliðið úr keppninni á þeim forsendum að það sé ekki rétt að misbjóða áhorfendum með því að láta þá horfa upp á skelfilega spilamennsku liðsins. Austurríkismenn hafa ekki unnið sigur í átta landsleikjum í röð og mæta grönnum sínum Svisslendingum í vináttuleik þann 13. október næstkomandi. Stuðningsmennirnir sem mæla fyrir uppátækinu segja að það sé algengara að loftsteinar lendi á jörðinni en að landsliðið sýni takta á vellinum. "Við erum ekki að þessu til að gagnrýna þjálfarann eða leikmennina. Okkur finnst bara leikur liðsins vera móðgun við knattspyrnuáhugamenn. Maður dettur í djúpt þunglyndi við að horfa á liðið spila," sagði einn þeirra sem opnuðu heimasíðuna. Einnig hafa verið gefnir út bolir af sama tilefni með áletruninni "Austurríkis-lausa Evrópukeppni" og þá má sjá á myndinni sem fylgir fréttinni.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Frakkland - Marokkó | Átta liða úrslitin hefjast Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fram - Breiðablik | Topplið sækir botnlið heim Þór/KA - Grindavík/Njarðvík | Nýliðar fyrir norðan FH - Þróttur R. | Hörkuslagur í Hafnarfirði Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Sjá meira