Innlent

Fimm ungmenni handtekin á Akureyri

MYND/KK

Lögreglan á Akureyri handtók á miðnætti og í dag fimm ungmenni sem meðal annars eru grunuð um innbrot og að hafa tekið þátt í fjársvikamáli þar sem stolin greiðslukort voru notuð.

Tveir piltanna, fimmtán og átján ára, voru handteknir á miðnætti þar sem þeir óku um á stolnum bíl. Piltarnir stálu bílnum á höfuðborgarsvæðinu. Á hádegi handtók svo lögreglan þrjú ungmenni til viðbótar, tæplega tvítuga stúlku og tvo rúmlega tvítuga pilta, þegar þau reyndu að senda þýfi til Reykjavíkur með flutningabíl. Þau voru einnig á stolnum bílum. Talið er að ungmennin tengist öll og hafa flest þeirra áður komist í kast við lögin. Þau eru meðal annars grunuð um nokkur innbrot í heimahús á Akureyri eða í nágrenni.

 



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×