Innlent

Kraftur og hugvit grunnur að útrás til Danmerkur

Forseti Íslands segir kraft og hugvit íslensku þjóðarinnar grunninn að

miklum fjárfestingum Íslendinga í Danmörku. Þetta sagði hann á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í morgun um nýsköpun íslenskra fyrirtækja.

„Tölur um hagnað íslenskra banka sem voru gerðar opinberar fyrir skömmu sýna þetta mjög vel. Vöxturinn er ótrúlegur þrátt fyrir að árið 2006 hafi verið erfitt íslenskum bönkum vegna mikillar fjölmiðlaumfjöllunar í Danmörku.

Rekstur íslenskra fyrirtækja í Danmörku og samstarf með dönsku

viðskiptafólki er eitt af grunnatriðum þess mikla árangurs sem Íslendingar hafa náð á undanförnum árum. Ég er viss um að sameiginleg uppskera okkar á komandi árum mun vera til góðs bæði fyrir Danmörku og Ísland," sagði forseti Íslands meðal annars í ræðu sinni.

Við fjöllum nánar um þessa ráðstefnu í Kaupmannahöfn í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×