Innlent

Hreyfing fyrir alla

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis og tryggingamálaráðherra hefur stofnað til tilraunaverkefnisins Hreyfing fyrir alla.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis og tryggingamálaráðherra hefur stofnað til tilraunaverkefnisins Hreyfing fyrir alla.

Tilraunaverkefni um aukna hreyfingu landsmanna hefur verið hleypt af stokkunum. Tilgangur verkefnisins Hreyfing fyrir alla er að fjölga tilboðum og skipulagðri hreyfingu, sér í lagi fyrir fullorðna og eldra fólk, og er ætlað að höfða til ólíkra hópa með mismunandi þarfir sem stunda ekki reglulega hreyfingu.

Vonir standa til að verkefnið geti náð til allt að 2/3 hluta landsmanna en um er að ræða samvinnu við ýmis bæjarfélög, stéttarfélög auk heilsugæslu og íþróttafélaga í við komandi sveitarfélögum, auk fleiri aðila.

Um er að ræða samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar og Íþrótta- og Ólympíusambands íslands.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að hreyfingarleysi sé einn af helstu orsakavöldum lífstílstengdra sjúkdóma eins og ofþyngdar, aukins kólesteróls og hækkaðs blóðþrýstings. Óhollt mataræði, reykingar, áfengis- og vímuefnaneysla eru þættir sem við getum tekið á sjálf; "og bætt þannig heilsu okkar," sagði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra; "Það er aldrei of seint að breyta um lífsstíl."

Þrettán milljónir hafa verið tryggðar í samstarfsverkefnið sem var undirritað í höfuðstöðvum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Laugardal í dag. Í tilefni hans var fulltrúm þátttakenda í verkefninu kennd undirstöðuatriði í stafagöngu - almenningsíþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda hérlendis og hentar fólki á öllum aldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×