Innlent

KEA hagnaðist um tæpar 290 milljónir í fyrra

Hagnaður KEA á síðasta ári nam 287 milljónum króna og jókst um tæpar 25 milljónir frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands.

Heildareignir félagsins námu í árslok 2006 5,4 milljörðum króna og skuldir og skuldbindingar rúmum 900 milljónum.  Haft er er eftir Halldóri Jóhannssyni, framkvæmdastjóra KEA, að uppgörið sé viðunandi miðað við aðstæður á fjármála- og fjármagnsmörkuðum og þeirrar fjárfestingastefnu sem félagið fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×