Innlent

Undirrituðu samning um samstarf á sviði menningarmála

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um samstarf ráðuneytanna á sviði menningarmála.

Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytunum felur samkomulagið meðal annars í sér að marka stefnu sem meðal annars taki mið af því að efla áhuga erlendis á íslenskri list og menningu, auka möguleika og áhrif íslenskra listamanna á alþjóðlegum vettvangi, bæta menningarímynd Íslands og auka gagnkvæm menningarsamskipti við önnur lönd og menningarsvæði.



Ráðuneytin munu á yfirstandandi ári hvort um sig leggja fé af mörkum til þessa. Stefnt er að því að auka fjárframlögin í áföngum á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×