Sturla þvær hendur sínar í Grímseyjarferjumálinu 16. ágúst 2007 17:01
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, segist aldrei hafa gefið fyrirmæli sem leiddu til þess að kostnaður við Grímseyjarferju fór langt út fyrir áætlun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sturlu. Hann tekur undir yfirlýsingu samgönguráðuneytisins að líta verði á málið alvarlegum augum. Yfirlýsing Sturlu Böðvarssonar: „Skýrsla Ríkisendurskoðunar um nýja Grímseyjarferju hefur orðið tilefni mikillar umræðu undanfarna daga. Vegna núverandi starfa minna tel ég mig ekki í aðstöðu til að tjá mig um efni þeirrar skýrslu. Mér finnst heldur ekki rétt að ég tjái mig um málið sem fyrrverandi samgönguráðherra. Samgönguráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að núverandi stjórnendur ráðuneytisins líti málið alvarlegum augum og muni í framhaldinu bregðast við með viðeigandi hætti. Við það hef ég engu að bæta. Þar sem mjög er leitað eftir umsögn frá mér um þetta mál leyfi ég mér þó að benda á að Vegagerðin annast fyrir samgönguráðuneytið útboð og umsjón með framkvæmdum sem að jafnaði kosta á bilinu tíu til tuttugu milljarða króna ár hvert. Samgönguráðherra á hverjum tíma verður að sjálfsögðu að treysta stofnunum sínum og ráðgjöfum þeirra til þess að fara að verklagsreglum og sinna daglegum störfum sínum af ýtrustu fagmennsku. Verði misbrestur þar á er endanleg ábyrgð vissulega ráðherrans en dagleg afskipti hans eða yfirsýn vegna framvindu einstakra verkefna af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru auðvitað óhugsandi. Af hálfu ráðherra voru aldrei gefin fyrirmæli sem áttu að geta leitt til þeirrar niðurstöðu sem nú liggur fyrir um kostnað við ferjuna. Við ákvörðun um nýja Grímseyjarferju voru einkum tveir valkostir til skoðunar. Annars vegar að kaupa notað skip og lagfæra það til samræmis við þarfagreiningu sem sérstakur starfshópur sem ég skipaði árið 2003 hafði framkvæmt. Hins vegar að ráðast í nýsmíði sem augljóst var að yrði mun dýrari kostur. Ódýrari leiðin var valin en því miður kom í ljós að kostnaðaráætlanir reyndust mjög óraunhæfar miðað við þær endurbætur sem nauðsynlegt var að ráðast í. Engu að síður bendir allt til að endanlegur kostnaður við kaup og lagfæringar Grímseyjarferjunnar verði undir því verði sem þurft hefði að greiða fyrir nýtt skip. Hagkvæmasti kosturinn var því valinn og þrátt fyrir að framvinda verksins hafi auðvitað valdið miklum vonbrigðum var aldrei um annað að ræða en að ljúka því með eins hagkvæmum hætti og frekast væri unnt. Vegagerðin hefur í gegnum tíðina annast fjölmörg stór verkefni á borð við jarðgangagerð og smíði brúarmannvirkja til viðbótar við kostnaðarfreka vegagerð með óaðfinnanlegum hætti. Engu að síður er fullkomlega eðlilegt að þegar undantekning verður á, jafnvel þó verkefnið sé ekki umfangsmikið á mælikvarða ríkisframkvæmda, verði það tilefni til rækilegrar umfjöllunar og viðeigandi aðgerða. Augljóst er hins vegar að slíkt getur aldrei verið á borði fyrrverandi samgönguráðherra heldur einungis þeirra sem nú standa við stjórnvölinn í ráðuneytinu. Reykjavík, 16.8.2007 Sturla Böðvarsson"
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Sjá meira