Innlent

Baráttufundur vegna virkjanaframkvæmda í neðri hluta Þjórsár

Urriðafoss er í neðarlega í Þjórsá og hafa virkjanaframkvæmdir áhrif á fossinn.
Urriðafoss er í neðarlega í Þjórsá og hafa virkjanaframkvæmdir áhrif á fossinn.

Andstæðingar virkjanaframkvæmda í neðri hluta Þjórsár efna til baráttufundar næsta sunnudag. Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Sól á Suðurlandi standa fyrir fundinum sem haldinn verður í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Landsvirkjun áformar að reisa þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsá.

Á vefnum sudurland.is er sagt frá því að heimamenn ætli að taka til máls á fundinum auk þess sem sýnd verði kvikmynd Ómars Ragnarssonar um Þjórsá. Fundurinn hefst klukkan þrjú á sunnudaginn og er öllum opinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×