Fulltrúi forseta ekki á fund utanríkismálanefndar 7. febrúar 2007 11:50
Hvorki fulltrúi forsetaembættisins né utanríkisráðuneytisins mættu á fund utanríkismálanefndar í morgun, vegna setu forsetans í þróunarráði Indlands. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, segir að utanríkisráðherra muni koma á fund nefndarinnar síðar. Formaður utanríkismálanefndar greindi frá því í síðustu viku að hann vildi fá fulltrúa forsetaembættisins og utanríkisráðuneytisins á fund nefndarinnar til að skýra hvernig stóð á því að forseti Íslands tók sæti í Þróunarsjóði Indlands, sem hann telur forsetann ekki hafa heimild til að gera án samráðs við utanríkisráðherra. Fulltrúar þessara aðila mættu hins vegar ekki á reglulegan fund utanríkismálanefndar í morgun. "Ég ætla að ræða þetta mál við utanríkisráðherra fá hann hingað á fundinn en hann komst ekki nú. Síðan sjáum við til hvert framhaldið verður," sagði Halldór Blöndal við upphaf nefndarfundar í morgun. Hvenær heldur þú að utanríkisráðherra komist á fund til þín? "Ja, það er nú ekki ákveðið," sagði Halldór. Eftir á að hyggja segir Halldór að hann sjái ekki nauðsyn á að kalla forsetaritara fyrir utanríkismálanefnd, þar sem forsetinn vinni á ábyrgð utanríkisráðherra og sé sjálfur óábyrgur af öllum stjórnarathöfnum. En það hefur aldrei gerst í sögu lýðveldisins að forseti Íslands eða fulltrúar hans þurfi að sitja fyrir svörum þingnefndar. Halldór vill hins vegar að utanríkismálaráðherra mæti á fund nefndarinnar. Það sé nauðsynlegt fyrir nefndina að vita með hvaða hætti utanríkisráðherra stendur að utanríkismálastefnunni. "Og eins ef einhver ágreiningur eða misskilningur er uppi milli utanríkisráðherra og forseta, eða ef einhver misskilningur er í gangi um hlutverk forseta Íslands, þá er gott að fá að vita það," sagði Halldór Blöndal formaður utanríkismálanefndar í morgun.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira