Innlent

Þrír Íslendingar yfirheyrðir vegna barnaklámhrings

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur síðan um áramótin rannsakað mál þriggja Íslendinga sem taldir eru tengjast barnaklámhring í Austurríki.

Lögregla í Austurríki gerði í gær rassíu hjá alþjóðlegum barnaklámhring í samstarfi við lögreglu í 77 ríkjum. Hátt í tvö þúsund og fjögur hundruð manns eru grunaðir um aðild. Íslendingarnir sem um ræðir hafa verið yfirheyrðir hjá lögreglu en hún vill ekkert gefa upp rannsóknina að öðru leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×