Gaf út ábyrgð fyrir 13,1 milljarða króna 16. apríl 2007 18:30
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna gaf út ábyrgðaryfirlýsingu upp á 13,1 milljarð króna. Eitt af því sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar er hvort einn eða fleiri Íslendingar tengist bandarísku fyrirtæki sem ábyrgðin var gefin út til. Það voru starfsmenn í innra eftirliti Verðbréfaþjónustunnar sem uppgötvuðu að Viggó Þórir Þórisson framkvæmdastjóri hafði gefið út ábyrgðarbréf upp á 200 milljónir Bandaríkjadala, eða 13,1 milljarð íslenskra króna. Ábyrgðin mun þegar hafa verið afturkölluð og ógilt, þannig að forráðamenn Verðbréfaþjónustunnar telja að sjóðurinn muni ekki þurfa að standa við yfirlýsinguna. Málið er rannsakað sem skjalafals eða rangfærsla skjala. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar á efnahagsbrotadeildin eftir að yfirheyra framkvæmdastjórann fyrrverandi frekar. En hann var kallaður í skyndi heim frá útlöndum fyrir helgi og færður til yfirheyrslu á föstudag. Búist er við að hann verði færður aftur til yfirheyrslu í lok þessarar viku eða í næstu viku. En hann er í farbanni. Lögreglan verst allra fregna af rannsókninni, en samkvæmt heimildum fréttastofunnar er málið rannsakað sem ásetningsbrot. Ef framkvæmdastjórinn verður ákærður, er hér um að ræða eina hæstu upphæð í skjalafölsunarmáli í Íslandssögunni. Heimildir herma að efnahagsbrotadeildin vinni nú að því að koma á samstarfi við bandarísk yfirvöld, til þess að hægt sé að rannsaka málið þeim megin frá og yfirheyra fólk vestra. En eftir því sem fréttastofan kemst næst, er um að ræða fyrirtæki í eigu Bandaríkjamanns í Arisona fylki. Eitt af því sem lögreglan rannsakar er hvort og þá hverning framkvæmdastjórinn fyrrverandi tengist hinu bandaríska fyrirtæki og hvort aðrir Íslendingar, einn eða fleiri, tengist fyrirtækinu einnig. Málið mun ekki vera eins flókið og mörg önnur stórmál sem efnahagsbrotadeildin hefur haft til rannsóknar á undanförnum árum, en það flækir þó málið, að það nær yfir landamæri annarra ríkja.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira