Bjarni kom ekki til greina 28. október 2007 16:44 Bjarni Jóhannsson
Landsliðsnefnd KSÍ mun koma saman í kvöld eða á morgun þar sem ráðning landsliðsþjálfara verður efst á baugi. Eyjólfur Sverrisson er hættur sem þjálfari íslenska landsliðið en samningur hans rann út fyrir síðasta leikinn í undankeppni EM sem er útileikur gegn Dönum í næsta mánuði. Eins og fram kom hér á Vísi vildi Eyjólfur ekki taka að sér að stýra liðinu gegn Dönum nema KSÍ gerði við hann áframhaldandi samning, en það vildi sambandið ekki. Þegar svona staða kemur upp er ekki óalgengt að aðstoðarmönnum þjálfara sé falið að stýra liðum þar til eftirmaður finnst, en það kom ekki til greina hjá KSÍ að þessu sinni. Bjarni Jóhannsson, aðstoðarmaður Eyjólfs, hefur þar með lokið störfum með landsliðinu rétt eins og Eyjólfur. "Bjarni tilheyrir sveit Eyjólfs Sverrissonar. Það er landsliðsþjálfarinn sem fær hann til sín sem aðstoðarmann og hann var með samning um að aðstoða Eyjólf, svo það er auðvitað bara búið. Ég veit ekki hvort einhver annar þjálfari vill hafa hann sem aðstoðarmann en almennt er það þannig að starfi aðstoðarmanna er lokið þegar þjálfarinn hættir," sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ í samtali við Vísi í dag. Við spurðum Geir hvort KSÍ hefði rætt eitthvað við Bjarna. Hann segir það vera á ábyrgð Eyjólfs Sverrissonar. "Það er Eyjólfur sem sér um sitt lið." Bjarni vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir náði tali af honum í dag. Sá orðrómur hefur verið á kreiki í dag að þeir Ólafur Jóhannesson, fyrrum þjálfari FH og Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, séu inni í myndinni hjá KSÍ sem næstu landsliðsþjálfarar. "Þetta er áhugaverð saga, en því miður er ekki að marka staf í henni," sagði Ólafur í samtali við Vísi og sagðist ekkert hafa heyrt frá KSÍ. Ólafur hefur oftast verið nefndur til sögunnar sem næsti landsliðsþjálfari ásamt þeim Willum Þór Þórssyni þjálfara Vals og Guðjóni Þórðarsyni, þjálfara Skagamanna.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sjá meira