Innlent

Kannað hvort framleiða eigi snjó í Bláfjöllum

Skálafell.
Skálafell. MYND/Vilhelm

Verið er að skoða möguleika á snjóframleiðslu á skíðasvæði höfuðborgarbúa í Bláfjöllum. Borgarráð ætlar jafnframt að kanna hagkvæmni þess að hafin verði snjóframleiðsla á skíðasvæðinu í Skálafelli. Með því að setja upp snjóframleiðslukerfi væri hægt að fjölga notkunardögum skíðasvæðanna en snjóleysi hefur fækkað opnunardögum.

Snjóframleiðslukerfi var tekið í notkun í Hlíðarfjalli, skíðasvæði Akureyringa, árið 2005 og hefur það fjölgað skíðadögum nokkuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×