Davíð segir að krónan verði áfram gjaldmiðill Íslendinga 10. febrúar 2007 18:45
Krónan verður gjaldmiðill Íslendinga næsta áratuginn hið minnsta, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir tal um að taka upp evru án þess að vera í Evrópusambandinu vera æfingar sem ekki séu boðlegar til að hafa uppi á borðinu.Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lýsti í viðtali á gamlársdag miklum efasemdum um að Íslendingar gætu til lengri tíma haldið úti sjálfstæðum gjaldmiðli. Valgerður Sverrisdóttir lýsti sömu efasemdum í hádegisviðtalinu á Stöð 2 gær. Ekki væri hægt að neita því að vandamál væri að halda krónunni. Valgerður kvaðst þó aldrei hafa sagt að hægt yrði að taka upp evru án þess að ganga í Evrópusambandið. Hún teldi að mjög litlar líkur væru á því að það væri hægt. Það þyrfti hins vegar að ræða þetta mál og finna lausn.Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, sagði á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í gær, að íslenska krónan væri of lítill og óstöðugur gjaldmiðill og myndi hverfa með tímanum. Hvatti hann til þess að Íslendingar tækju þátt í myntsamstarfi Evrópu og tækju upp evru.Davíð Oddsson segir nokkuð öruggt að Íslendingar muni búa við krónuna til næstu ára, kannski áratugs og næstu áratuga. Í rauninni detti engum í hug í fullri alvöru að kasta krónunni og taka upp annan gjaldmiðil, evru eða dollara, án þess að það yrði þá nánara bandalag. Menn myndu þá ganga í Bandaríkin vegna dollars eða ganga í Evrópusambandið vegna evru.Forstöðumenn fyrirtækja sem mælt hafa með evru hafa staðhæft að Íslendingar skerði lífskjör sín og hagvöxt með því að halda í krónuna. Davíð bendir hins vegar á að hagvöxtur á íslenska krónusvæðinu hafi verið miklu meiri á undanförnum árum heldur en á evrusvæðinu.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Sjá meira