Innlent

Lögreglumaður stakk af

Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður. MYND/SMK

Ekið var á snjósleða íbúa eins á Seyðisfirði fyrir stuttu þar sem hann stóð fyrir utan hús hans. Á vef Austurgluggans er sagt frá því að eigandi sleðans hafi orðið vitni atvikinu en sleðinn skemmdist talsvert.

Þannig sá eigandinn þegar ökumaður bílsins fór út úr bílnum til að skoða sleðann og svo bílinn sem skemmdist lítið. Eftir að hafa litið flóttalega í kringum sig fór hann af vettvangi. Eigandinn náði númerinu á bílnum og kærði atvikið til lögreglu. Þegar lögreglan fór síðan að rannsaka málið kom í ljós að ökumaður bílsins er starfandi lögreglumaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×