Innlent

Íslenskukennslu fyrir erlent fiskvinnslufólk

Íslenskukennslu fyrir erlent fiskvinnslufólk á Íslandi verður komið á, en sjávarútvegsráðherra og fulltrúi Fjölmenningarseturs á Ísafirði skrifuðu undir samning þess efnis í gær.

Ætlunin er að flétta íslenskukennslu inn í aðra þætti í starfsnámi og byggja þannig upp orðaforða og auka færni starfsmanna í íslensku þannig að tjáskipti innan fyrirtækjanna í greininni verði auðveldari sem og að hvetja til enn frekara íslenskunáms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×