Innlent

Skipverjar Castor Star bíða enn eftir launum

Ekkert þokast í málum skipverja á flutningaskipinu Castor Star sem er við Grundatangahöfn. Fulltrúi útgerðarinnar kom aftur um borð í skipið í morgun en skipverjarnir hafa enn ekki fengið launin sín greidd.

Það var á miðvikudaginn sem skipið kom til Grundartanga með súrál. Eftirlitsmaður frá Sjómannafélagi Íslands kannaði aðbúnað um borð og sögðu skipverjarnir honum þá að þeir hefðu engin laun fengið síðan í september auk þess sem matur væri af skornum skammti. Sjómannafélag Íslands og Alþjóðaflutningasambandið stöðvuðu því uppskipun í fyrradag en þá voru enn eftir um átta tonn af súráli í skipinu.

Birgir Hólm Björgvinsson, framkvæmdastjóri Sjómannafélagins, sagði í samtali við fréttastofu fyrir hádegi að lítið þokaðist í samkomulagsátt. Fulltrúi útgerðarinnar kom til landsins í gær og réði þá ráðum sínum með íslenskum lögfræðingi. Áhafnarmeðlimir skrifuðu undir bréf þar sem þeir veittu Sjómannafélagi Íslands umboð til að sjá viðræður við útgerðina. Birgir segir félagið hafa rætt við fulltrúa útgerðarinnar í gær en þá hafi þeir aðeins boðist til að greiða helming launanna.

Auk þess að fara fram á að fá vangreidd laun hafa skipverjar nær allir, utan skipstjóra og tveggja annarra, lagt fram skriflega kröfu um nýja samninga sem byggja á reglum Alþjóðaflutningasambandsins.

Í morgun kom fulltrúi útgerðarinnar aftur um borð í skipið. Hann hefur hins vegar ekkert rætt við eftirlitsmenn frá Sjómannafélaginu sem standa fast á því að uppskipun hefjist ekki á ný fyrr en skipverjar fá laun sín greidd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×