Fótbolti

Auðvelt hjá Englendingum - Rooney braut ísinn

Englendingar unnu í dag þriðja 3-0 sigur sinn í röð í undankeppni EM þegar liðið lagði Eista á Wembley. Sigur Englendinga var aldrei í hættu eftir að Shaun-Wright Phillips kom liðinu yfir snemma leiks og Wayne Rooney skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið síðan 2004.

Þriðja mark enska liðsins var sjálfsmark, en nú getur liðið komið sér í þægilega stöðu með sigri á Rússum í næsta leik. Eina áhyggjuefnið fyrir Englendinga í dag var að bakvörðurinn Ashley Cole var borinn af velli eftir að hafa meiðst á ökkla.

England: Robinson, Richards, Campbell, Ferdinand (Lescott 46), Ashley Cole (Neville 49), Wright-Phillips, Gerrard, Barry, Joe Cole, Rooney, Owen (Lampard 70).

Mörkin: Wright-Phillips 11, Rooney 32, Rahn 33 sjálfsmark.

 

Skotar halda áfram frábæru gengi sitt í B-riðlinum með 3-1 sigri á Úkraínu á heimavelli sínum. James McFadden átti frábæran leik fyrir Skota og skoraði tvö mörk og Kenny Miller eitt. Andriy Shevchenko svaraði fyrir Úkraínu, en liðið á nú ekki möguleika á að tryggja sér sæti á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×