Innlent

Bílar fuku í óveðri í gærkvöldi

Tveir menn voru fluttir meiddir á sjúkrahús eftir að lítill flutningabíll fauk út af veginum við Ingólfsfjall um níuleytið í gærkvöldi. Þá fauk bíll út af þjóðveginum við bæinn Reyðará hjá Lóni skammt frá Höfn í Hornafirði. Fimm voru í bílnum og þurfti einn að leita til læknis vegna skurðar á hendi en aðrir sluppu ómeiddir.

Björgunarsveit var einnig kölluð út til að hemja báta í höfninni í Seyðisfirði, sem voru farnir að losna í rokinu. Ekki er vitað um tjón þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×