Innlent

844 fengu íslenskt ríkisfang í fyrra

MYND/Stefán

Ríflega 840 manns fengu íslenskan ríkisborgararétt á síðasta ári samkvæmt breytingaskrá þjóðskrár. Fram kemur á vef Hagstofu Íslands að þeim hafi fjölgað ört á síðustu árum, þó mest milli áranna 2003 og 2004 en þá fjölgaði einstaklingum sem öðluðust íslenskt ríkisfang úr rúmlega 460 í rúmlega 670.

222 þeirra sem fengu íslenskt ríkisfang í fyrra höfðu áður ríkisfang í Póllandi en Pólverjar hafa allt frá árinu 2003 verið fjölmennasti hópur þeirra sem fengið hafa íslenskt ríkisfang. Þá hefur þeim sem fengið hafa íslenskt ríkisfang en höfðu áður ríkisfang í einhverju af ríkjum fyrrum Júgóslavíu fjölgað mjög. Á síðasta ári voru þeir 89 og voru langflestir þeirra frá Serbíu og Svartfjallalandi, eða 79. Í hópnum eru auk þess 105 sem áður höfðu ríkisfang á Filippseyjum og 54 frá Taílandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×