Þrjátíu og tveir hætta á RÚV 12. febrúar 2007 18:30
Þrjátíu og tveir starfsmenn Ríkisútvarpsins nýttu sér rétt til að fara á biðlaun, við stofnun hlutafélags um útvarpið hinn 1. apríl næstkomandi. Ekki er víst að ráðið verði í allar þessar stöður á nýjan leik. Starfsfólkið hafði frest fram á föstudag í síðustu viku, til að tilkynna hvort það hygðist notfæra sér biðlaunaréttinn, en alls áttu 116 manns rétt á honum. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu nokkur þekkt andlit hverfa af skjánum, þeirra á meðal Ómar Ragnarsson, Katrín Pálsdóttir, Finnbogi Hermannsson og G Pétur Matthíasson fréttamenn. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að 60 prósent þeirra sem nýta sér biðlaunaréttinn séu 60 ára og eldri. Kostnaður útvarpsins vegna þessa er rúmar 90 milljónir króna, en ársvelta þess er um 3,3 milljarðar. "Og algengast er náttúrlega fólk sem hefði eða mun á biðlaunatímanum ná réttinum til að taka lífeyri. Þannig að það má s.s. líta á það svoleiðiðs, að ef það nýtti sér ekki þennan biðlaunarétt, þá væri það að kauplaust fram að töku lífeyris," sagði útvarpsstjóri. Páll segir alltaf eftirsjá af góðu fólki sem hafi unnið hjá stofnuninni af miklum heilindum í gegnum tíðina. Framundan sé að endurskoða skipulag útvarpsins, verkhætti og verklag. "Þannig að það er ekki víst að það þurfi að ráða í allar þessar stöður. Það er yfirferð og gegnumferð sem við eigum eftir að fara," sagði Páll. Ekki er sjálfgefið að starfsfólki RÚV verði fækkað. "Við munum reyna að auka hérna skilvirkni frá því sem nú er. Og það eru tvær leiðir í því; annað hvort að fá það sama út úr færri starfsmönnum eða meira út úr sama fjölda," sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira