Erlent

Strauk og varð fangi í áratug

Sagði grátandi við réttarhöldin að Hose hefði svipt sig sakleysinu.
Sagði grátandi við réttarhöldin að Hose hefði svipt sig sakleysinu. fréttablaðið/ap

 Fyrrverandi öryggisvörður í grunnskóla, Thomas John Hose, var á miðvikudag dæmdur í fimm til fimmtán ára fangelsi fyrir að hafa haldið stúlku, sem strauk að heiman, á heimili sínu í áratug og átt ítrekað samræði við hana.



Tanya Nicole Kach var fjórtán ára þegar hún strauk að heiman og fór til Hose, sem hún sagðist hafa verið hrifin af, árið 1996. Hose, sem er 49 ára, hélt Kach inni á heimilinu og stjórnaði henni algjörlega að sögn Kach.

Hose, sem játaði sig sekan um öll ákæruatriði, var fullur iðrunar við réttarhöldin og bað Kach afsökunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×