Fótbolti

Ítalía og Frakkland á EM á kostnað Skotlands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Christian Panucci fagnar sigurmarki sínu ásamt Daniele De Rossi.
Christian Panucci fagnar sigurmarki sínu ásamt Daniele De Rossi. Nordic Photos / AFP

Christian Panucci er nú þjóðhetja á Ítalíu og Frakklandi eftir að hann tryggði heimsmeisturunum sigur á Skotum á útivelli með marki í uppbótartíma.

Þetta var síðasti leikur Skotlands í riðlinum og er liðið nú með færri stig en bæði Ítalía og Frakkland. Frakkar eiga ekki leik í undankeppninni í dag en geta fagnað engu að síður.

Luca Toni kom gestunum yfir strax á annarri mínútu leiksins og kom það heimamönnum vitaskuld í opna skjöldu.

Skotar voru þó síst lakari aðilinn í leiknum og létu mark Ítala ekki slá sig út af laginu. Þeir uppskáru svo loksins á 65. mínútu er Barry Ferguson er hann fylgdi eftir skoti Lee McCulloch sem var varið.

Bæði lið fengu góð færi undir lok leiksins til að tryggja sér sigur. Enginn fékk þó betra færi en James McFadden sem brenndi af fyrir opnu marki.

Panucci skoraði svo sigurmarkið er hann skallaði boltann í markið eftir aukaspyrnu Andrea Pirlo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×