Hátt í 100 manns án atvinnu 20. apríl 2007 18:21
Hátt í eitt hundrað manns misstu vinnuna eftir brunann í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag. Tveir stærstu veitingastaðirnir sem brunnu höfðu hátt í 70 starfsmenn. Þeir eru báðir með tryggingu sem tryggir starfsmönnum laun á meðan þeir eru í atvinnuleit. Ekki eru enn nákvæmar tölur um hversu margir misstu vinnuna eftir brunann en samkvæmt heimildum fréttastofu eru þeir hátt í eitt hundrað talsins. Fimm fyrirtæki voru rekin í húsunum sem brunnu að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Þau voru Pravda, Kaffi ópera, Kebab húsið, Rósenberg, og Tourist Booking . Einar Ingason framkvæmdastjóri Pravda segir að yfir fimmtíu manns hafi verið í föstu og hlutastarfi á staðnum og enn sé óljóst hvað verði um þá. Tuttugu manns voru að hefja störf hjá Kaffi Óperu sem hugðist opna nýjan stað 1.júní næstkomandi og fara starfsmenn þar líklega til starfa á öðrum veitingastöðum sem fyrirtækið 101 heild rekur. Alls störfuðu 20 manns hjá Rósenberg og Kebab húsinu sem brunnu einnig illa. Til viðbótar eru nokkrir starfsmenn sem störfuðu á öllum stöðum í hlutastarfi. Niels Olgeirsson formaður Matvæla- og veitingafélags Íslands réttarstöðu starfsmanna sem lenda í svona aðstæðum mjög litla. Hafi fyrirtæki hins vegar svokallaða rekstrarstöðvunartryggingu greiði hún laun starfsmannanna þar til þeir komast í aðra vinnu. Eigendur Pravda og Kaffi óperu segja báða staðina hafa verið vel tryggða. Þeir hafi rekstrarstöðvunartryggingu sem tryggi starfsmönnum laun á meðan þeir leiti annarra starfa. Eigendur Rósenbergs og Kebab hússins segjast ekki hafa slíka tryggingu og því fái starfsmenn þar, ekki greidd laun líkt og hjá hinum stöðunum. Niels segir að fólk eigi ekki eftir að eiga í erfiðleikum með að finna störf við sitt hæfi. Mikil mannekla sé á veitingahúsum og skemmtistöðum borgarinnar og nóga atvinnu að hafa.
Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sjá meira