Innlent

Hálka og éljagangur víða um land

MYND/GVA

Vegagerðin varar við hálkublettum á Reykjanesbraut og hálku og éljagangi á á Sandskeiði, Þrengslum og Hellisheiði. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir og þá er hálka á öllum vegum á Vesturlandi og auk þess éljagangur á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja. Á Norðurlandi er víðast hvar snjóþekja á vegum en greiðfært er að mestu á Norðaustur-, Austur - og Suðausturlandi. Þó eru hálkublettir eða hálka á fjallvegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×