Íslendingur lést í flugslysi í Kanada 20. ágúst 2007 05:45
Liðlega tvítugur Íslendingur lést í flugslysi í Bresku Kólumbíu í Kanada síðdegis í fyrradag. Þrír aðrir voru í vélinni, einn Íslendingur og tveir Kanadamenn, allir um tvítugt, og komust þeir lífs af. Samkvæmt upplýsingum frá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra var vélin, fjögurra sæta Cessna-vél, á leið til bæjarins Squamish þegar hún steyptist til jarðar í skóglendi. Íslendingurinn lést á staðnum en hitt fólkið var flutt alvarlega slasað með þyrlu á sjúkrahús í Vancouver. Kanadíska dagblaðið Vancouver Sun lýsir hetjudáð annars kanadísku farþeganna, sem þar segir að hafi bjargað þeim tveimur sem á lífi voru, nítján ára íslenskum manni og tvítugri kanadískri stúlku, út úr vélarflakinu og komið þeim á öruggan stað. „Þegar hann hafði komið þeim á autt svæði framkvæmdi hann fyrstu hjálp og svo veifaði hann okkur þannig að við fundum nákvæma staðsetningu þeirra. Hann er sönn hetja,“ hefur blaðið eftir Bruno Lapointe, tæknimanni leitarvélarinnar. Á vefnum segir að þremenningarnir hafi þjáðst af ofkælingu og verið með mismikla líkamlega áverka. Á vefnum canada.com segir að þykkt skóglendi sé þar sem vélin hrapaði og erfitt hafi verið fyrir leitarmenn að finna fólkið. Ekki fengust nánari upplýsingar um líðan Íslendingsins slasaða, eða hver flaug vélinni.
Mest lesið Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Raunvirði íbúða lækkar á ný Innlent Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Erlent „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Innlent Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Innlent „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Innlent Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Innlent Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ Innlent Fór inn á heimili, klæddi sig úr fötunum og sofnaði í stól Innlent Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Innlent Fleiri fréttir „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Fór inn á heimili, klæddi sig úr fötunum og sofnaði í stól 3,9 stiga skjálfti í Bárðarbungu Raunvirði íbúða lækkar á ný Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Biðla til fólks að taka vel á móti sölumönnum þó svikahrappar séu á ferð Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Bókun 35 fór hnökralaust í gegnum fyrstu umræðu en gæti reynt á í næstu Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Vítamínmarkaðurinn á Íslandi eins og villta vestrið Tjáir sig um brottvísun Kourani og tekist á um Jimmy Kimmel Tóku fyrstu skóflustungu að næsta áfanga miðbæjarins á Selfossi „Ýtnir og frekir“ útlendingar þykjist heyrnarlausir til að svíkja af fólki fé BSRB fordæmir áform ríkisstjórnar um að skerða réttindi starfsfólks Piltur stakk mann ítrekað en var sýknaður af tilraun til manndráps Hafnir landsins þurfa hátt í hundrað milljarða næstu fimmtán árin Harma áform stjórnvalda sem heimila hækkun gjalda Innan við helmingur segist trúaður Guðjón Ragnar skipaður skólameistari „Ég er bara eins og ég er og tala bara eins og ég tala“ Inga á móti neitunarvaldi sveitarfélaga „Ævintýralegur ávinningur“ og ráðherra segir auðvelt að sækja um Kjósa um sameiningu sveitarfélaganna í lok nóvember og desember Gísli Marteinn „alls ekki“ á leið í framboð Vilja að átján ára fái að kaupa áfengi Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Sjá meira