Brotið á einstaklingum til að túlka hlutafélagalögin 30. júní 2007 02:15 „
Niðurstaða dómsins er alveg skýr um það að ég er sýknaður af öllum ákæruliðum. Það er aðalatriðið varðandi það sem snýr að mér,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs um niðurstöðu héraðsdóms á fimmtudag. Í fjórum ákæruliðum er Baugur talinn hafa brotið hlutafélagalög, en heimildir til refsingar í lögunum séu óskýrar. Jón Ásgeir er alfarið sýknaður. Jón Ásgeir segir sitt mat vera að þarna hafi verið um eðlileg viðskipti að ræða milli aðila. „Við mátum þetta á sínum tíma sem eðlileg viðskipti í þágu beggja aðila, enda hafa svona viðskipti verið stunduð víðar en hjá okkar fyrirtæki og endurskoðendur kvittað upp á slíkt, eins og þeir gerðu í okkar tilviki. Ég tel að Hæstiréttur muni líta þetta öðrum augum.“ Jón Ásgeir segir að frá sínum bæjardyrum séð sé stærsta málið að einstaklingur þurfi að sitja og bíða eftir niðurstöðu dóms þrisvar sinnum í sama máli í héraðsdómi. „Það stenst engan veginn mannréttindi að þannig sé hægt að koma fram við fólk. Það er svakalegt að hlusta á orð saksóknara um að atvinnulífið krefjist skýringa á hvernig þessi lög virka og hvort það standist að þau séu ekki nægjanlega skýr. Þarf nokkuð frekari vitna við: þrír dómarar hafa komist að þeirri niðurstöðu, sem getur ekki bent til annars en að lögin séu óskýr. Það er auðvitað alveg svakalegt að einstaklingar séu notaðir sem einhver tilraunadýr um túlkun laga. Þannig má þetta ekki virka.“ Jón Ásgeir segir að af sama meiði sé skattamál sem er í kerfinu. „Það mál snertir að miklu leyti sömu málaflokka og nú hafa gengið þrisvar til dóms. Þar þarf ég enn að svara fyrir sömu hluti. Ætli það eigi að fara í fjórða skiptið fyrir dóm með þessi atriði og þá í einhverjum skattabúningi. Það getur bara ekki staðist. Það hefur verið gengið allt of langt í þessu máli og það er án fordæma að gengið sé fram gegn einstaklingum af slíku offorsi.“
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Erlent Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Innlent Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Erlent Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Erlent Fleiri fréttir Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent