Hafa ávallt komist yfir á Råsunda 5. júní 2007 08:53 nordic photos/afp
Íslenska landsliðið hefur spilað vel í tveimur heimsóknum sínum á Råsunda, heimavöll AIK í Solna í Stokkhólmi. Leikurinn á miðvikudaginn verður sá þriðji í röðinni en hinir tveir enduðu með 1-1 jafntefli 1995 og með 1-3 tapi tíu árum síðar. Þetta eru alls ekki slæm úrslit, ekki síst fyrir þær sakir að íslenska liðið hefur tapað síðustu þremur heimaleikjum sínum á móti Svíum með markatölunni 2-7. Ísland lék sinn fyrsta leik á Råsunda í undankeppni EM 1996 en þjóðirnar mættust þá 1. júní 1995 á Råsunda. Þetta var fjórði leikur Íslands af átta í riðlakeppninni. Svíar höfðu náð í brons á HM í Bandaríkjunum sumarið á undan og unnið 1-0 sigur í fyrri leiknum sem fram fór á Laugardalsvellinum í september árið á undan. Leikurinn byrjaði frábærlega þegar Arnar Gunnlaugsson skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu eftir aðeins þriggja mínútna leik. Svíar náðu reyndar að jafna leikinn úr vafasamri vítaspyrnu þrettán mínútum síðar en íslenska vörnin hélt út og jafnteflið er ein bestu úrslit íslenska landsliðsins á útivelli í sögu Evrópukeppninnar. Stigin tvö sem Svíar sáu eftir spiluðu líka rullu í að Svíar komust ekki í úrslitakeppnina. Þjóðirnar mættust aftur á Råsunda rúmum tíu árum seinna eða nákvæmlega 12. október 2005 í lokaleik Íslands í undankeppni HM 2006. Svíar voru í harðri baráttu við Króata um sigur í riðlinum en komust á endanum beint á HM vegna góðs árangurs í 2. sæti. Leikurinn byrjaði á svipaðan hátt og áratug áður því Kári Árnason kom íslenska liðinu yfir á 25. mínútu leiksins. Það tók Svía nú aðeins fjórar mínútur að jafna leikinn og var þar að verki snillingurinn Zlatan Ibrahimovic, sem lagði einnig upp annað mark Svía sem Henrik Larsson skoraði rétt fyrir hálfleik. Svíar skoruðu síðan þriðja markið í blálokin og tryggðu sér 3-1 sigur. Råsunda er sögulegur leikvangur því aðeins einn annar völlur hefur hýst bæði úrslitaleik karla og kvenna á HM. Sá völlur er Rósarskálin í Pasadena í Kaliforníu í Bandaríkjunum (karlar 1994 og konur 1999). Úrslitaleikur kvenna fór fram á Råsunda-leikvanginum 1995 en 37 árum áður hafði Pele, þá 17 ára, breytt knattspyrnusögunni á vellinum með því að skora tvö mörk í 5-2 sigri Brasilíumanna á Svíum í úrslitaleik karla. Þetta var fyrsti heimsmeistaratitill Brasilíu. Þetta gæti orðið síðasti landsleikur Íslands á vellinum því Svíar eru að byggja sér nýjan fimmtíu þúsund manna völl í Solna og í kjölfarið verður Råsunda-völlurinn rifinn. Nýi völlurinn ætti að verða tilbúinn upp úr árinu 2010 en þangað til er Råsunda heimavöllur sænska landsliðsins og þar bíður íslenska liðsins erfitt verkefni á miðvikudagskvöldið.
Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Katla kynnt til leiks í Flórens Í beinni: Afturelding - Vestri | Mikið undir hjá báðum liðum Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sjá meira