Þingmenn úthluta peningum úr tómum sjóði Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. nóvember 2007 11:42 Þrátt fyrir að fæðingarorlofssjóður sé tómur vilja þingmenn lengja fæðingarorlof.
Þrátt fyrir að halli sé á rekstri fæðingaorlofssjóðs vilja allir stjórnmálaflokkarnir sem sæti eiga á Alþingi, nema Frjálslyndi flokkurinn, lengja fæðingarorlofið. Sjálfstæðisflokkurinn tilgreinir ekki, í sínum landsfundarályktunum, hve langt fæðingarorlofið eigi að vera, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Vinstri-grænir vilja lengja það úr níu mánuðum í eitt ár. Auk þess vilja Vinstri-grænir að foreldrar eigi, auk fæðingarorlofsins, kost á tveggja mánaða launuðu foreldraorlofi síðar. Í fjáraukalögum fyrir árið 2007 er lagt er til að veitt verði 440 milljónum til Fæðingarorlofssjóðs vegna endurskoðaðrar áætlunar um útgjöld sjóðsins á árinu. Hækkunin er skýrð af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna hækkunar á mótframlagi í lífeyrissjóði um síðastliðin áramót. Í öðru lagi hafa fleiri farið í fæðingarorlof en áætlað var. Í þriðja lagi var reglum um greiðslur úr sjóðnum breytt á árinu í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis sem hafði í för með sér meiri útgjöld en gert var ráð fyrir. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, segir fæðingarorlofssjóð ekki vera á hausnum. „Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að stjórnmálaflokkarnir stefni á lengingu fæðingarorlofs þrátt fyrir að staða sjóðsins sé svona," segir Kristján Þór og bendir á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sé stefnt að lengingu fæðingarorlofs. „Mér finnst fyllilega kominn tími til þess að menn fari að leggja mat á sjóðinn sem slíkan, hvernig hann er fjármagnaður, hvernig menn vilji að hann virki í framtíðinni og hvaða árangri hann hafi skilað hingað til," segir Kristján.
Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Fleiri fréttir Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Sjá meira