Fimmtíu milljarða króna þarf til neyðaraðstoðar til handa konum og börnum árið 2006 23. janúar 2006 22:45 Mynd/AP
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna UNICEF, þarf um fimmtíu milljarða króna árið 2006 til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Fyrirhugað er að rúmur þriðjungur þeirrar upphæðar fari til hjálpar börnum í Súdan en alls segja samtökin neyðarástand ríkja á 29 svæðum í heiminum. Þetta kemur fram í ársskýrslu UNICEF, Humanitarian Action Report, um neyðaraðstoð fyrir árið 2006. Í henni kemur fram hvaða verkefni eru brýnust og hvað UNICEF þarf mikinn fjárstuðning til að geta mætt þörfum barna og kvenna í viðkomandi löndum. Af þeim 29 svæðum sem UNICEF segir neyðarástand ríkja á eru 21 í Afríku, tvö í Ameríku, tvö í Kákasushéruðunum og þrjú til viðbótar í Asíu, að Palestínu ógleymdri. Neyðaraðstoð UNICEF felst í að hjálpa fólki að komast af, veita því grundvallarþjónustu og þjálfun í kennslu, barnavernd, hreinlæti, næringu og heilsugæslu. Þá dreifir UNICEF námsefni, meðhöndlar börn sem þjást af vannæringu, veitir aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, bólusetur tugi milljóna barna gegn sjúkdómum og fær börn frelsuð úr ánauð. Þrátt fyrir að fjárstuðningur við UNICEF hafi aldrei verið meiri en síðastliðið ár, fengu aðeins fjögur neyðarsvæði af 25 það árið yfir 50 prósent af þeirri upphæð sem til þurfti. Samtökin leggja áherslu á að þrátt fyrir að ákveðnir harmleikir hafi fengið heimsathygli sé neyðarástand í löndum sem ekki hafi fengið næga athygli.
Erlent Fréttir Mest lesið „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Innlent Sturla Böðvarsson er látinn Innlent Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Innlent Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Innlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Innlent Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Innlent Danir standi á krossgötum Erlent Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Innlent Fengu ekki réttargæslumann þrátt fyrir grun um ofbeldi á leikskólanum Innlent Fleiri fréttir Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Hefja formlega rannsókn á kynferðislegum fölsunum Musk Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar fjölmenna á götum Tehran Hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlaaðganga Rannsaka nú og skoða ákærur gegn seðlabankastjóranum Trump íhugar íhlutun í Íran Danir standi á krossgötum Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Verði að eignast Grænland svo Kína og Rússland geri það ekki Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Stendur fastur fyrir og fordæmir Trump Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Takmarka myndaframleiðslu Grok í skugga gagnrýni Segir Bandaríkin þurfa að eignast Grænland, sáttmálar séu ekki nóg Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Sjá meira