Al-Qaida hóta fleiri árásum þar til samtökin hafa náð völdum í Írak 5. janúar 2006 19:46
Á annað hundrað manns hefur látið lífið í tveimur sprengjuárásum í Írak í dag. Ekkert lát virðist vera á árásum í landinu en al-Qaida samtökin hafa sagt að þeim verði ekki hætt fyrr en Bandaríkjamenn verði á bak og burt og þau hafi náð völdum í landinu. Að minnsta kosti sjötíu manns féllu í sprengjuárás í borginni Karbala í sunnanverðu Írak í morgun. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjía-múslima. Þá særður yfir sextíu í árásinni og er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka til muna. Þá féllu að minnsta kosti sextíu manns og yfir þrjátíu eru særðir eftir að maður sprengdi sig í loft upp á fjölfarinni götu í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í dag. Hafa því á annað hundrað manns farist í sprengjutilræðum í landinu í dag, þar á meðal fimm bandarískir hermenn og vikan því orðin ein sú blóðugasta síðan Bandaríkjamenn ruddust inn í landið árið 2003. Al-Qaida hafa lýst því yfir að sprengjuárásum muni ekki linna fyrr en Bandaríkjamenn eru á bak og burt og samtökin hafa náð fullum völdum í Írak. George Bush, Bandaríkjaforseti hefur sagt að til standi að fækka í herliði Bandaríkjamanna þar sem Írakar hafa náð góðum tökum á ýmsum vandamálum. Herinn verði þó til staðar þar til Írakar hafa náð að koma lífi í eðlilegt horf. Bandaríkjaher hefur verið iðinn við að handtaka háttsetta meðlimi Al Qaida en erfiðlega gengur þó að fækka árásum á bandaríska hermenn, en Al Qaida segja þá vera aðal skotmörk samtakanna. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að það muni taka góð tíu ár að koma lífi í landinu í eðlilegt horf en stjórnmálaskýrendur segja það mikla bjartsýni, litlar líkur séu á að hernum takist ætlunarverk sitt á svo skömmum tíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Sjá meira