Vissi af hættunni 2. mars 2006 14:00 MYND/AP
George Bush Bandaríkjaforseti vissi að fellibylurinn Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir New Orleans degi áður en fellibylurinn skall á borgina. Eftir að neyðaraðstoð hafði gjörsamlega brugðist sagði forsetinn hins vegar að enginn hefði getað séð fyrir hve miklar afleiðingarnar yrðu.Í myndbandsupptöku frá tuttugasta og áttunda ágúst, sem AP fréttastofan hefur komist yfir sést hvar embættismenn vara Bush við því að New Orleans kunni að fara á kaf eftir yfirreið fellibylsins Katrínar. Bush hlustar á viðvaranirnar og fullvissar alla um að stjórnvöld séu tilbúin. Þar segist hann vilja þakka hinum góðu embættismönnum Lousiana, Alabama og Mississippi, fyrir að hlusta á viðvaranirnar og undirbúa íbúana undir þennan mikla fellibyl. Hann fullvissi embættismenn þessara ríkja um að stjórnvöld séu reiðubúin til að hjálpa þegar fellibylurinn gangi yfir og til þess verði notuð öll þau meðul sem þau hafi yfir að ráða. Þessi orð ganga þvert gegn því sem Bush hélt fram eftir að hjálparstarfið klúðraðist svo illa að yfirmaður almannavarna Michael Brown, neyddist til að segja af sér. Enginn hefði mögulega getað séð fyrir að fellibylurinn yrði svo öflugur að flóðvarnir myndu bresta.Borgarstjórinn í New Orleans Ray Nagin, trúði vart sínum eigin augum, þegar upptakan var spiluð fyrir hann í gær. Hann þyrfti að fara betur yfir málið, en flest benti nú til að allir hefðu verið meðvitaðir um hættuna sem vofði yfir og því ótrúlegt hve illa hjálparstarfið hafi gengið.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira