Erlent

Mótmæli halda áfram í Oaxaca í Mexíkó

Mexíkóskur alríkislögreglumaður fylgist með þróun mála í miðbæ Oaxaca í Mexíkó.
Mexíkóskur alríkislögreglumaður fylgist með þróun mála í miðbæ Oaxaca í Mexíkó. MYND/AP

Þúsundir andstæðinga ríkisstjórans í Oaxaca í Mexíkó söfnuðust saman í miðborginni í gærkvöldi og urðu átök milli þeirra og alríkislögreglunnar.

Mótmælin hafa dregið dilk á eftir sér þar sem ferðamenn hafa alveg horfið frá borginni og í framhaldinu hafa mörg fyrirtæki hafa neyðst til þess að loka. Mexíkóska þingið samþykkti líka í gær tillögu þar sem ríkisstjórinn í Oaxaca, Ulises Ruiz, var hvattur til þess að segja af sér. Hann sagði aftur á móti að mexíkóska þingið hefði enga lögsögu í bænum og að hann ætlaði sér að sitja enn um sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×