Erlent

Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu ráðin af dögum

Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu, Cesar Gaviria, var í gær drepin af óþekktum glæpamönnum. Atvikið átti sér stað í um 180 kílómetra fjarlægð frá Bogota höfuðborg landsins. Liliana Gaviria, sem var 52 ára fasteignasali, var á ferð með tveimur lífvörðum sínum þegar ráðist var á þau en annar lífvörður hennar féll einnig í árásinni. Cesar Gaviria var forseti á árunum 1990-1994. Hann leiðir nú helsta stjórnarandstöðuflokkinn en kosningar fara fram þann 28. maí næstkomandi. Yfirvöld hafa heitið 30 milljónum króna þeim sem getur veitt upplýsingar um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×