Öryggisráðið þarf að grípa til aðgerða 27. apríl 2006 22:29 Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. MYND/AP
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ólíklegt að Íranar hætti auðgun úrans. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þurfi því að grípa til aðgerða til að viðhalda trúverðugleika sínum. Frestur sá sem Öryggisráðið veitti Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út á morgun. Þá mun Alþjóða kjarnorkumálastofnunin gera ráðinu grein fyrir stöðu mála. Íranar hafa hafnað þessum fresti. Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í ræðu í dag að engum myndi takast að neyða Írana til að láta frá sér kjarnorkutækni sína. Kjarnorkuáætlun landsins ætti ekki að ógna öðrum ríkjum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Pútín Rússlandsforseti, funduðu í Síberíu í dag. Merkel lagði þá áherslu á að alþjóðasamfélagið stæði saman í kjarnorkudeilunni við Írana. Pútín lagði áherslu á að Alþjóða kjarnorkumálastofnunin viki sér ekki undan skyldum sínum með því að vísa málinu til Öryggisráðsins. Merkel og Pútín voru sammála um að eina leiðin til lausnar á deilunni væri samningaleiðin. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, situr nú óformlegan fund utanríkisráðherra Atlandshafsbandalagsríkja sem hófst í Búlgaríu í dag. Rice sagði á blaðamannafundi að ríki Öryggisráðsins yrðu að vera reiðubúin til að grípa til aðgerða til að bregðast við aðgerðaleysi Írana. Hún bætti því við að varla þyrfti að taka það fram að Bandaríkin litu svo á að Öryggisráðið yrði að grípa til aðgerað til að viðhalda trúverðugleika sínum. Samtök Írana í útlegð segja stjórnvöld í Teheran vinn að þróun hraðvirkrar skilvindu sem mun stytta þann tíma sem fer í auðgun úrans til muna. Íransforseti segir þá tækni í skoðun en fulltrúi Írana í útlegð segir stjórnvöld í Teheran hugsanlega geta tekið þá tækni í gagnið á næstu mánuðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira