Fangaflugið var umfangsmikið og kerfisbundið 26. apríl 2006 19:00
Sérkennilegar leiðir fangaflugvéla bandarísku leyniþjónustunnar CIA frá einni borg til annarrar voru á meðal þess sem vakti grunsemdir rannsóknarnefndar Evrópuþingsins. Nefndin skilaði bráðabirgðaskýrslu sinni í dag þar sem því er haldið fram að CIA hafi flogið rúmlega þúsund sinnum í gegnum lofthelgi ESB síðan 2001 án þess að gera grein fyrir ferðum sínum. Rannsóknarnefndin hefur undanfarna mánuði rannsakað hvort ásakanir um rekstur leynifangelsa CIA og fangaflutninga þeim tengdum eigi við rök að styðjast með því að grandskoða upplýsingar um flugumferð í aðildarríkjum ESB og yfirheyra fólk sem segist hafa verið haldið í slíkum fangelsum. Í dag kynnti nefndin skýrslu um fangaflugið sem hún segir bæði víðtækt og kerfisbundið. Giovanni Fava, formaður nefndarinnar, segir að CIA hafi flogið rúmlega þúsund sinnum í gegnum lofthelgi ESB síðan 2001 án þess að gera grein fyrir ferðum sínum. Fava sagði að sérstaka grunsemdir hefði vakið hvernig fangaflugvélunum hefði verið flogið frá einni borg til annarrar og sagði öruggt að þær hefðu ekki verið að taka eldsneyti á þessum stöðum. Hann bætti því við að sökum þess hversu tíðar ferðirnar hefðu verið og sömu leyniþjónustumenn hefðu stýrt þeim væri mjög ólíklegt að ríkisstjórnir landa á borð við Ítalíu og Svíþjóð hefðu ekki vitað um þær. Næstu skref nefndarinnar verða svo að ferðast til Austur-Evrópu til að kanna hvort leynifangelsi hafi þar verið starfrækt. Ennfremur er ráðgert að ræða við bandaríska embættismenn um málið.
Erlent Fréttir Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Fleiri fréttir Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Sjá meira