Mikill sigur fyrir Gíursany í Ungverjalandi 24. apríl 2006 13:00
Stjórnarflokkarnir héldu velli í þingkosningum í Ungverjalandi, sem fram fóru í gær. Þeirra bíður það verkefni að ná niður mesta fjárlagahalla innan Evrópusambandsins. Núverandi ríkisstjórn hlaut 210 þingsæti af 386. Sósíalistaflokkur forsætisráðherrans Ferens Gíursany og samstarfsflokkar hans voru úrslitunum glaðir. Áframhaldandi meirihluti er mikill persónulegur sigur fyrir forsætisráðherrann, sem reif upp fylgi sósíalista eftir að hann tók við embætti árið 2004. Hann hefur nú fengið afgerandi umboð til að halda áfram á þeirri braut sem stjórn hans hefur fetað undanfarin tvö ár. Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórn heldur velli í landinu eftir fall kommúnismans árið 1989. Það er óhætt að segja að stöðugleiki sé kannski einmitt það sem þarf til að koma efnahag Ungverjalands á rétta braut. Fjárlagahalli er hvergi meiri innan Evrópusambandsins miðað við stærð efnahagsins og ljóst að það verður stærsta verkefni stjórnarinnar að ná honum niður. Evrópusambandið hefur ítrekað beint þeim fyrirmælum til Ungverja að ná fram stöðugleika í efnahagsmálum, eða verða að öðrum kosti refsað. Ungverjar hafa fengið vilyrði fyrir að taka upp Evruna árið 2010, en það gæti hæglega þurft að bíða enn um sinn ef ekki tekst mjög fljótlega að ná tökum á fjárlagahallanum.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira