Erlent

Skotið á mótmælendur nærri konungshöll

Mikil mótmæli eru í Katmandú, höfuðborg Nepals.
Mikil mótmæli eru í Katmandú, höfuðborg Nepals. MYND/AP

Lögregla í Nepal skaut á mótmælendur í miðbæ Katmandú í morgun og særði að minnsta kosti átta menn. Tugþúsundir manna hundsuðu útgöngubann og gengu um götur borgarinnar í átt að konungshöllinni.

Í gær bauðst Gíanendra konungur til þess að ræða við stjórnarandstöðuna um þátttöku í ríkisstjórn landsins. Stjórnarandstæðingar sögðu tilboðið ekki ganga nógu langt og höfnuðu því. Fjöldi vopnaðra lögreglumanna mannar nú vegatálma umhverfis konungshöllina. Skotárásin í morgun átti sér stað í eins kílómetra fjarlægð frá höllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×