Erlent

Listi yfir nöfn fanga gerður opinber

Bandarísk stjórnvöld hafa gert opinberan lista yfir nöfn þeirra fanga sem eru í haldi í Guantanamo fangelsinu. Á listanum eru meira en 500 fangar frá 41 landi og sumir hafa verið í haldi í meira en fjögur ár.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum ákváðu að birta listann eftir að AP fréttastofan krafðist þess að fá hann afhentan samkvæmt upplýsingalögum í Bandaríkjunum.

Alls eru á listanum 558 nöfn, og langflestir eru fangarnir flokkaðir sem liðsmenn úr herjum óvina Meira en helmingur fanganna er frá Sádí Arabíu, Afghanistan og Jemen.

Á listanum eru meðal annarra Ástralinn David Hicks, sem gekk til liðs við hryðjuverkahóp í Afghanistan árið 2001 og Sádinn Mohammed al-Khatani, sem átti að taka þátt í árásunum á Bandaríkin ellefta september 2001.

En þrátt fyrir þennan lista hefur varnarmálaráðuneytið enn ekki gert opinber nöfn allra þeirra sem hafa verið í haldi í Guantanamo. Enn eru tæplega 400 fangar í haldi í fangelsinu, sem opnaði í janúar árið 2002.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×