Erlent

Skotbardagar og óeirðir í Nepal

Allt logar í óeirðum í höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Tugþúsundir manna hafa virt útgöngubann í höfuðborginni að vettugi.

Mótmælendurnir krefjast þess að Gyanendra konungur afsali sér einræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rösku ári og lýðræði verði aftur komið á í landinu. Útgöngubann hefur verið sett á í höfuðborginni, þar sem allt hefur logað í ófriði undanfarnar tvær vikur. En í morgun söfnuðust um fimmtíu þúsund manns saman á götum Katmandu.

Öryggissveitir hafa fengið fyrirmæli um að hika ekki við að skjóta þá sem brjóta útgöngubannið og því ljóst að ekki var von á góðu. Til að byrja með var gúmmíkúlum skotið á mannfjöldann og reynt að halda aftur af mótmælendum með táragasi. En það bar ekki árangur og þá gripu öryggissveitir til skotvopna. Minnst þrír mótmælendur féllu og á annan tug særðist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×