Erlent

Ringulreið ríkir í Nepal

Hermenn við eftirlit í Katmandu, höfuðborg Nepals.
Hermenn við eftirlit í Katmandu, höfuðborg Nepals. MYND/AP

Algjör ringulreið ríkir í Katmandu, höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Mótmælendurnir krefjast þess að Gyanendra konungur afsali sér einræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rösku ári.

Útgöngubann hefur verið sett á í höfuðborginni, þar sem allt hefur logað í ófriði undanfarnar tvær vikur. Öryggissveitir hafa fengið fyrirmæli um að hika ekki við að skjóta þá sem brjóta útgöngubannið. Í morgun féllu tveir mótmælendur í skotárásum lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×