Erlent

Ekkert lát á flóðum í Rúmeníu

MYND/AP

Yfirvöld í Rúmeníu hafa þurft að flytja mörg þúsund íbúa frá heimilum sínum í suðurhluta landsins vegna vatnavaxta í Dóná. Ekkert lát virðist ætla að verða á flóðum á svæðinu sem þó benti til að yrði raunin í gær.

Flytja þurfti 1.200 manns á brott frá Dolj-héraði þegar stífla í nágrenninu hrundi. Lögreglu gekk erfiðlega að sannfæra fólk að það væri því fyrir bestu að hverfa á brott af svæðinu. Ljóst var að íbúar yrðu fluttir nauðugir á brott ef þeir færu ekki með góðu.

Rennslið í ánni nú er tvöfalt meira en venjan er á þessu árstíma og er nú tæplega 16 þúsund rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar er meðalrennsli Þjórsár 360 rúmmetrar á sekúndu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×