Útilokar ekki notkun kjarnorkuvopna 19. apríl 2006 13:15 George Bush, Bandaríkjaforseti. MYND/AP
Bush Bandaríkjaforseti vildi í gær ekki útiloka að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn Írönum. Hann sagði alla möguleika uppi á borðinu í kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. Utanríkisráðherra Rússa hvatti í dag Írana til að hætta auðgun úrans, alþjóðasamfélagið krefðist þess. Á blaðamannafundi í gær var Bush Bandaríkjaforseti spurður hvort það kæmi til greina að beita kjarnavopnum gegn Írönum. Forsetinn sagði alla mögleika uppi á borðinu. Vilji sé fyrir því að leysa kjarnorkudeiluna með friðsamlegum hætti og að því sé unnið hörðum höndum. Sendifulltrúar sex ríkja, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Kína, Rússlands og Þýskalands, komu sama í Moskvu í gær til að ræða möguleg næstu skref í deilunni. Ekki tókst Bandaríkjamönnum og Bretum að fá það þegar í gegn að gripið yrði til refsiaðgerða ef Íranar hafi ekki hætt auðgun úrans fyrir 28. þessa mánaðar. Kínverjar og Rússar hafa ekki viljað samþykkja refsiaðgerðir. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, sagði í morgun að engin endanleg niðurstaða hefði fengist á fundinum í gær og beðið yrði eftir skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Frakkar tóku í sama streng og sögðu rétt að bíða skýrslunnar áður en ákvörðun yrði tekin um refsiaðgerðir. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í morgun að honum þætti ólíklegt að Íranar yrðu við kröfum alþjóðasamfélagsins. Hann sagðist því eiga von á því að málinu yrði vísað aftur til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem ákvörðun yrði tekin um næstu skref. David Albright, fyrrverandi vopna eftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna og kjarnorkusérfræðingur, segir Írana hafa stækkað vinnslusvæði sitt fyrir auðgun úrans í Isfahan og styrkt neðanjarðarvinnslustöðvar sínar í Natanz. Þetta hafi verið gert af ótta við árásir Bandaríkjamanna. Albright segir það geta því orðið afar erfitt að eyða vinnslustöðvum með loftárásum.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira