Íslamskir öfgamenn farið um Balkanskagann í 15 ár 19. apríl 2006 12:59 Skýrslan sem AP-fréttastofan hefur undir höndum. MYND/AP
Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaeda hryðjuverkasamtökin, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. Leyniþjónustur Bandaríkjanna og Króatíu unnu skýrsluna sem er á þriðja hundrað blaðsíður. AP-fréttastofan hefur komist yfir eintak af henni. Samkvæmt skýrslunni hafa múslimarnir nýtt sér lélega landamæra- og öryggisgæslu á Balkanskaganum og komist þannig án mikilla vandkvæða til Evrópu, en þeir eru aðallega taldir hafa komið frá Afganistan og þá í gegnum Tyrkland, Kosovo og Albaníu. Talsmaður múslima í Bosníu segir það sem fram komi í skýrslunni ekki eiga við rök að styðjast. Mirsad Bektasevic er annar tveggja herskárra múslima sem bosnískur dómstóll ákærði í síðustu viku fyrir að leggja á ráðin um að sprengja í loft upp ótilgreint skotmark í Evrópu. Bektasevic, sem er 19 ára og búsettur í Svíþjóð, mun hafa átt fundi með samverkamönnum sínum á hóteli í útjaðri Serajevo. Þeir eru meðal annars sagðir koma frá Bretlandi og Danmörku. Lögreglan í Bosníu hafði Bektasevic undir eftirliti og gerði áhlaup á íbúð hans í Serbíu síðasta haust. Þar var lagt hald á sprengiefni og ýmislegt annað. Lögregla í Bosníu hefur eftirlit með íslömskum vígamönnum sem komu þangað til lands til að berjast með múslimum á árunum 1992 til 1995. Flestir munu síðan hafa farið til að berjast í Afganistan, Téténíu og Írak. Einhverjir urðu þó eftir. Talið er að flestir þeirra sem nú berjist séu ungir karlmenn sem hafi bugast vegna 40% atvinnuleysis í landinu. Klerkar segja erftitt að hafa auga með þeim sem boði heilagt stríð gegn vesturlöndum. Auk þess séu nú aðeins um sex þúsund og fimm hundruð friðargæsluliðar Evrópusambandsins í Bosníu eða um einn tíundi herliðs Atlandshafsbandalagsins sem var þar árið 1995.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira