Erlent

Gætu neyðst til að loka herstöð

Bakiyev, forseti Kirgistan, segir að svo geti farið að stjórnvöld þar í landi neyðist til að loka herstöð Bandaríkjamanna þar ef stjórnvöld í Washington vilji ekki semja á ný um leigugreiðslur fyrir það landstæði sem stöðin stendur á. Bandaríkjaher byggði herstöð sína í Kirgistan árið 2001 þegar Talíbanastjórninni ií Afganistan var steypt. Bakiyev forseti hefur áður krafið Bandaríkjamenn um hærri leigugreiðslur en um leið fullyrt að herinn geti verið í Kirgistan þar til stöðugleiki hefur náðst í Afganistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×