Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál 19. apríl 2006 08:30 Bill Gates og Hu Jintao. Mynd/AP
Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn snæddi þá kvöldverð með stofnanda Microsoft. Í dag mun hann svo funda með Bandaríkjaforseta. Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál.Kína er þriðji stærsti útflutningsmarkaður Bandaríkjanna auk þess sem verðmæti innfluttra vara frá Kína til Bandaríkjanna í fyrra nam jafnvirði rúmlega tólf hundruð milljörðum íslenskra króna. Nokkur órói er þó meðal bandarískra stjórnmálamanna og stjórnenda fyrirtækja þar í landi sem velta því fyrir sér hvernig Kínverjar ætli að nýta sér stöðu sína í alþjóðasamfélaginu.Það kemur því ekki á óvart að Hu Jintao, forseti Kína, hafi byrjað heimsókn sína á að funda með kaupsýslumönnum í Seattle. Fyrst átti hann fund með Bill Gates, stofnanda Microsoft, en bandaríski tölvurisinn hefur í nokkur ár barist gegn hugbúnaðarstuldi á þessu ört vaxandi markaði. Forsetinn fundaði síðan með öðrum forvígismönnum bandarískra fyrirtækja.Hu Jintao mun á morgun eiga fund með Bush Bandaríkjaforseta þar sem búist er við að fjölmörg mál verði rædd, þar á meðal kjarnorkudeilurnar við stjórnvöld í Íran og Norður-Kóreu. Mótmælendur fylgja forsetanum hvert fótmál í heimsókn hans. Þeir krefjast þess að Kínverjar veiti Tíbet sjálfstæði og gefi Tævönum frelsi til að ákveða sjálfir hvort þeir vilji sameinast meginlandi Kína á ný. Meðal mótmælenda eru félagar í Falun Gong hreyfingunni sem Kínverjar líta á sem sem ofsatrúarhóp. Hreyfingin segir kínversk yfirvöld hafa ofsótt Falun Gong félaga og myrt þá. Því verði að linna.
Erlent Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Fleiri fréttir „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Sjá meira